Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í janúar 2009 er 334,8 stig og hækkaði um 0,57% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 304,7 stig og hækkaði hún um 0,43% frá desember.

Þetta þýðir að 12 mánaða verðbólga er 18,6 % en án húsnæðis um 21,4%.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands en þar kemur fram að vetrarútsölur eru víða í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 8,2% (vísitöluáhrif -0,40%). Verð á flugfargjöldum til útlanda lækkaði um 14,5% (-0,19%).

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun verðbólgunnar síðustu 5 ár, eða frá janúar 2004.

Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 1,8% (0,24%) og efni til viðhalds húsnæðis hækkaði um 3,5% (0,16%). Þá hækkaði verð á nýjum bílum um 1,7% (0,12%).

Þá kemur fram að fastskattavísitala neysluverðs hefur verið uppfærð á ný og er nú áfengis-, tóbaks- og olíugjaldi auk vörugjalda af bensíni haldið föstum eins og þau voru í nóvember 2008.

Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,9% sem jafngildir 16,4% verðbólgu á ári (17,1% fyrir vísitöluna án húsnæðis).