Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæp 27% í mars miðað við sama tíma í fyrra, úr tæplega 99 þúsund farþegum árið 2004 í tæpa 125 þúsund farþega nú. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur rúmum 27% milli ára og farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgar um 24%.

Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um tæplega 19% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2004, eða úr rúmlega 252 þúsund farþegum í tæplega 300 þúsund farþega.