Á ríkisstjórnarfundi í morgun var samþykkt tillaga Sigurðar Inga Jóhannssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um 350 milljóna króna stuðning við bændur á þeim svæðum sem urðu illa úti vegna kals og snjóþyngsla. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Meginhluti fjárins mun fara til endurræktunar á túnum og fer úthlutunin fram í gegnum Jarðræktarsjóð. Þá mun nokkur hluti upphæðarinnar renna til bænda sem hafa haft umtalverðan kostnað vegna snjóþyngslanna. Unnið er að útfærslu úthlutunarreglna í samvinnu ráðuneytisins og Bændasamtaka Íslands sem verða kynntar nánar síðar.