58.700 manns á Íslandi, á aldrinum 25 til 64 ára, hafa lokið háskólanámi. Í prósentum er þetta 36% þjóðarinnar. Þetta kemur fram í nýjustu Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Háskólamenntuðum hefur fjölgað um 19.400 frá árinu 2003 en þá voru þeir 27,5% íbúa.

45.400 manns, eða 27,8% íbúa, höfðu eingöngu lokið grunnmenntun samkvæmt sömu rannsókn. Þetta er fækkun um 3.800 manns frá árinu 2003 og um 1.700 frá árinu 2012. Þá höfðu 36,1% íbúa mest lokið starfs- og framhaldsmenntun, sem er nám á framhaldsskólastigi sem er minnst tvö ár að lengd eða nám á viðbótarstigi.

Mikill munur var á menntun íbúa á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. 22,7% íbúa á höfuðborgarsvæðinu höfðu aðeins grunnmenntun en 42,3% háskólamenntun. Utan höfuðborgarsvæðisins höfðu 37% aðeins lokið grunnmenntun og 24,7% háskólamenntun. Þá er yngra fólk almennt meira menntað en þeir eldri.