Starfsmannafundur fór fram í morgun hjá fjölmiðlafyrirtækinu 365. Þar var starfsfólki tilkynnt að gripið hefði verið til þess ráðs að segja upp tíu starfsmönnum fyrirtækisins. DV greinir frá þessu.

Af starfsmönnunum tíu eru tveir sem starfa fyrir fréttadeild fyrirtækisins. Miklar skipulagsbreytingar hafa átt sér stað hjá fyrirtækinu að undanförnu þar sem fjölmargir starfsmenn hafa látið af störfum.