Af 1.831 starfandi íslenskum lækni er 731 starfandi í útlöndum, eða um 40% lækna, samkvæmt tölum frá Læknafélagi Íslands. Morgunblaðið greinir frá þessu.

Í tölunum er miðað við lækna sem eru með lækningaleyfi og eru 70 ára og yngri. Samkvæmt upplýsingum Læknafélagsins eru 406 læknar starfandi í Svíþjóð, 132 í Noregi, 94 í Bandaríkjunum, 57 í Danmörku, 29 í Bretlandi, 10 í Hollandi, tveir í Þýskalandi og einn í Ástralíu, og eru þá öll lönd upptalin sem Læknafélagið hefur upplýsingar um.