Hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 4,1% í september en það hlutfall hefur minnkað um 1,1 prósentustig frá því á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni. Þá voru að jafnaði 183.200 á aldrinum 16-74 ára  á vinnumarkaði í september 2014, sem janfgildir 79,2% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 175.700 starfandi og 7.500 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,9% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli því 4,1%.

Atvinnuþátttakan minnkaði um 2,7 prósentustig frá því á sama tíma í fyrra en þá minnkaði hlutfall starfandi um 1,7% og atvinnulausra um 1,1%. Í september 2014 var atvinnuleysi á meðal 16-24 ára 9,4% á meðan það var 3,2% hjá 25 ára og eldri.

Þegar leiðrétt er fyrir árstíðasveiflum var fjöldi fólks á vinnumarkaði 187.400 í september 2014 sem jafngildir 80,3% atvinnuþátttöku, sem er tveimur prósentustigum lægri en hún var í ágúst en þá var þátttakan 82,3%. Fjöldi atvinnulausra í september samkvæmt árstíðaleiðréttingu var 9.000 og fækkaði um 1.000 manns frá því í ágúst. Hlutfall atvinnulausra var 4,8% í september en var 5,3% í ágúst.