Í ljósi hagstæðra kjara hefur Icelandair Group selt óveðtryggð skuldabréf að fjárhæð 40 milljónir dollara, eða sem nemur tæplega 4,5 milljörðum króna, til fjárfesta. Um er að ræða framhaldsútgáfu í tengslum við skuldabréf sem félagið gaf út í október þegar félagið seldi skuldabréf að fjárhæð 150 milljónir dollara. Í skilmálum skuldabréfaflokksins er gert ráð fyrir að hann geti orðið allt að 300 milljónir dollara. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Icelandair.

Skuldabréfin eru til fimm ára og bera 3,5% vexti, ofan á þriggja mánaða LIBOR-vexti, án vaxtagólfs. „Kjörin eru hagstæð sé horft til margra alþjóðlegra flugfélaga sem félagið ber sig saman við. Fjármagnið verður nýtt í fjármögnun almennrar starfsemi Icelandair Group,“ er einnig tekið fram í tilkynningunni. Pareto Securities AB, hafði umsjón með sölu skuldabréfanna.