Mikill meirihluti kjósenda í Reykjavík vill að Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar verði næsti borgarstjóri. Í nýrri könnun Félagsvísindastofnunar Háskólans fyrir Morgunblaðið á fylgi borgarstjóraefna framboðslistanna nefna 63% þáttttakenda sem afstöðu tóku Dag. Halldór Halldórsson, oddviti sjálfstæðismanna, er nefndur af 19%.

„Ég er þakklátur fyrir þennan stuðning og mun gera mitt til að standa undir honum. En það er auðvitað kosningarnar sem gilda,“ sagði Dagur í samtali við Morgunblaðið. Persónufylgi Dags er mun meira en fylgi Samfylkingarinnar en samkvæmt könnun sem birt var í gær hefur flokkurinn 34% fylgi.