Nýskráningar ökutækja á fyrstu 44 dögum ársins eru samtals 444 en á sama tímabili í fyrra voru 3415 ökutæki nýskráð hér á landi.

Þetta er 87% fækkun nýskráninga milli ára.

Þetta kemur fram á vef Umferðarstofu en stofnunin hefur tekið saman yfirlit yfir nýskráningar ökutækja og eigendaskipti á tímabilinu frá 1. janúar 2009 til 13. febrúar 2009. Hafa skal í huga að hér er um að ræða nýskráningu og eigendaskipti allra skráningarskyldra ökutækja ekki bara bifreiða.

Þá kemur fram að eigendaskipti ökutækja á sama tímabili þessa árs eru 8349 en þau voru 11368 eftir jafn marga skráningardaga á síðasta ári. Hlutfallsleg lækkun eigendaskipta nemur því 26,6% milli ára.