Bréf í Marel hafa hækkað um 0,71% og standa nú í 85,30. Bréf Teymis hafa hækkað um 0,59%og síðustu viðskipti með hluti í félaginu voru 5,13 á hlut. Century Aluminum hefur hækkað um 0,29%.

Nokkrar lækkanir hafa átt sér stað - 365 heldur áfram að lækka í verði og lækkaði mest allra eða um 0,87%. Föroya Bank lækkaði um 0.86%, Bakkavör um 0,58%, síðustu viðskipti með bréf Actavis voru á genginu 89,1 sem er 0,56% lækkun frá því á föstudag.

Straumur-Burðarás og Landsbankinn hafa báðir lækkað, um 0,46% og 0,25%, og einnig hefur Icelandair lækkað um 0,54% og Exista um 0,44%.