Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur stendur nú í stað frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 11:55 í 3.852 stigum.

Vísitalan hafði um tíma hækkað um 0,2% í morgun og var það í fyrsta skipti í þessari viku sem hlutabréf hækka í upphafi dags.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga. Eimskip [ HFEIM ] hefur lækkað hratt nú undir hádegi en velta með bréf í félaginu er þó aðeins rúmlega 10 milljónir.

Eimskipafélagið hefur nú lækkað um 85,6% frá áramótum sé miðað við stöðuna nú á hádegi.

Velta með hlutabréf er um 2,2 milljarðar. Þar af eru rúmar 950 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], rúmar 770 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ], um 230 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] og tæpar 170 milljónir með bréf í Straum [ STRB ] en minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst og er gengisvísitalan nú 175 stig en gildi gengisvísitölunnar hefur aldrei verið hærra. Krónan hefur veikst um 2% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun.