Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 3,4% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 3.832 stigum.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,8% í síðustu viku og lækkað strax við opnun í morgun. Síðan þá hefur hún lækkað lítillega jafnt og þétt.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en ekkert félag ehfur hækkað í morgun.

Þá hefur Eimskip [ HFEIM ] lækkað um 18,8% það sem af er degi en hafði fyrr í morgun lækkað um 25% í morgun en félagið lækkaði um rúm 35% í síðustu viku.

Velta með hlutabréf er tæpir 2,3 milljarðar. Þar af eru tæpar 690 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], tæpar 660 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ], tæpar 550 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ], um 115 milljónir með bréf í Straum [ STRB ] og um 110 milljónir með bréf í Exista [ EXISTA ] en minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.

Krónan hefur veikst verulega í morgun eða um 2% og er gengisvísitalan nú 170,9 stig. Sjá frekar umfjöllunum gengisvísitöluna HÉR .