Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,58% og er 6.245 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá M5. Veltan nemur 2.357 milljónum króna.

Kaupþing banki hefur hækkað um 1,93%, Avion Group hefur hækkað um 0,65%, Alfesca hefur hækkað um 0,6%, Atorka Group hefur hækkað um 0,31% og Actavis Group hefur hækkað um 0,3%.

Atantic Petroleum hefur lækkað um 0,62%, Mosaic Fashions hefur lækkað um 1,15%, FL Group hefur lækkað um 0,9%, Dagsbrún hefur lækkað um 0,59% og Glitnir hefur lækkað um 0,49%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,87% og er 119,1 stig við hádegi.