Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,5% og er 4.863 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan á hlutabréfamarkaði nemur 750 milljónum króna. Á skuldabréfamarkaði er hinsvegar líf og fjör: Veltan nemur 23 milljörðum króna.

Breska vísitalan FTSE100 hefur lækkað um 1,8%, danska vísitalan OMXC hefur lækkað um 2,1%, norska vísitalan OBX hefur lækkað um 1,3% og sænska vísitalan OMXS hefur lækkað um 1,3%. Í gær hafði samevrópska vísitalan FTSEurofirst 300 hækkað tvo daga í röð.

Eimskip [ HFEIM ] hefur hækkað um 0,5% og Össur [ OSSR ] hefur hækkað um 0,1%.

Exista [ EXISTA ] hefur lækkað um 4%, Spron [ SPRON ] hefur lækkað um 3,4%, Eik banki [ FO-BANK ] hefur lækkað um 3,3%, Atlantic Petroleum [ FO-ATLA ] hefur lækkað um 2,7% og Straumur [ STRB ] hefur lækkað um 2,1%.

Gengi krónu hefur styrkst um 2,2% og er 142,3 stig.