OMXI15 vísitalan hefur lækkað um 0,2% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:05 í 354 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan stóð í stað við lok markaða í gær.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en Straumur, sem lækkað hefur um 3,8% í dag leiðir lækkanir.

Velta með hlutabréf er um 70 milljónir króna en þar af eru tæpar 36 milljónir króna með bréf í Stram.

Þá er velta fyrir tæpar 19 milljónir króna með bréf í Össur og tæpar 8 milljónir króna með bréf í Marel.