Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur nú undir hádegi lækkað um 0,4% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 11:50 í 4.217 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er um 870 milljónir. Þar af eru tæpar 440 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ], rúmar 160 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], tæpar 80 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] og rúmar 70 milljónir með bréf í Straum [ STRB ] en minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.

Krónan hefur veikst í morgun um 0,5% og er gengisvísitalan nú 159,2 stig.