Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 3,6% og er 5.386 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur ríflega sjö milljörðum króna. Úrvalsvísitalan hækkaði einnig ágætlega í gær en það sem af er ári nemur lækkunin 14,8%.

Helstu vísitölur í evrópu er einnig grænar.

Spron [ SPRON ] hefur hækkað um 9,8%, Atlantic Petroleum [ FO-ATLA ] hefur hækkað um 8%, FL Group [ FL ] hefur hækkað um 6,5%, Eimskip [ HFEIM ] hefur hækkað um 5% og Exista [ EXISTA ]hefur hækkað um 4%.

Ekkert félag hefur lækkað.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,6% og er 126,1 stig.