Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,09% og er 7.762 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 11,6 milljörðum króna.

Atlantic Petroleum hefur hækkað um 4,2%, Mosaic Fashions hefur hækkað um 1,85%, Glitnir hefur hækkað um 1,69%, Teymi hefur hækkað um 0,87% og Atorka Group hefur hækkað um 0,86%.

Össur hefur lækkað um 2,47%, Landsbankinn hefur lækkað um 0,58%, Kaupþing hefur lækkað um 0,37%, Exista hefur lækkað um 0,32% og Bakkavör Group hefur lækkað um 0,3%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,44% og er 117,5 stig.