Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,3% og er 5.195 stig við hádegi. Gengi krónu stendur í stað í 150,4 stigum, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Spron [ SPRON ] hefur hækkað um 2,2%, Össur [ OSSR ] hefur hækkað um 1,1%, Kaupþing [ KAUP ] hefur hækkað um 1% og Atlantic Airways [ FO-AIR ] hefur hækkað um 0,6%.

Skipti hefur lækkað um 3,45%, Straumur [ STRB ] hefur lækkað um 3,1%, Atorka Group [ ATOR ] hefur lækkað um 0,7%,  Eimskipafélagið [ HFEIM ]  hefur lækkað um 0,7% og Bakkavör Group [ BAKK ] hefur lækkað um 0,5%.