Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,81% og er 6.521 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá M5. Veltan nemur 2.163 milljónum króna.

Actavis Group hefur hækkað um 1,46%, FL Group hækkaði um 1,32%, Tryggingamiðstöðin hefur hækkað um 1,25%, Atlantic Petroleum hefur hækkað um 1,02% og Kaupþing banki hefur hækkað um 1,02%.

Mosaic Fashions hefur hækkað um 1,18% og Össur hefur hækkað um 0,4%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,08% og er 118,3 stig við hádegi.