Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,9% og er 5.543 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Danska vísitalan OMXC hefur hækkað um 1,6%, norska vísitalan OBX hefur hækkað um 2,9% og sænska vísitalan OMXS hefur hækkað um 0,7%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.

Flaga [ FLAGA ] hefur hækkað um 14,5% í veltu sem nemur 3,5 milljónum króna en félagið hækkaði um 15% í gær, Spron [ SPRON ] hefur hækkað um 5,2%, Atlantic Petroleum [ FO-ATLA ] hefur hækkað um 3,3%, Exista [ EXISTA ] hefur hækkað um 2,8% og Eimskip [ HFEIM ]  hefur hækkað um 2,4%.

Glitnir [ GLB ] hefur lækkað um 1,23%, FL Group [ FL ] hefur lækkað um 1,2%, Icelandair [ ICEAIR ]  hefur lækkað um 0,9% og Marel [ MARL ] um 0,5%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,3% og er 126 stig.