Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,17% og er 8.159 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur fjórum milljörðum króna.

Teymi hefur hækkað um 0,82%, Atorka Group hefur hækkað um 0,54%, Icelandair Group hefur hækkað um 0,37% sem og Landsbankinn og Exista hefur hækkað um 0,15%.

365 hefur lækkað um 1,43%, Glitnir hefur lækkað um 0,54%, Kaupþing hefur lækkað um 0,53%, Straumur hefur lækkað um 0,49% og Össur hefur lækkað um 0,47%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,24% og er 117,6 stig.