Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,5% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 11:55 í 3.087 stigum, samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 5,9% í gær og hélt áfram að lækka strax við opnun markaða í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en Glitnir er eina félagið sem hefur hækkað í morgun.

Velta með hlutabréf er um 7,4 milljarðar króna og þar af eru tæpir 4 milljarður króna með bréf í Landsbankanum en mikil viðskipti hafa verið með bréf í bankanum í morgun.

Þá er velta fyrir rúma 2 milljarðar með bréf í Kaupþingi og um 600 milljónir í Straum en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan stendur í stað það sem af er morgni og er gengisvísitalan nú 206,5 stig.