Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 2,9% og er 4.857 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 3,1 milljarði króna.

„Úrvalsvísitalan var síðast á þessum sömu slóðum í nóvember 2005," segir greiningardeild Glitnis. „Í síðustu viku lækkaði úrvalsvísitalan um 7,5% og  lokaði í sléttum 5.000 stigum í vikulok. Úrvalsvísitalan hefur nú lækkað um tæplega 22% frá áramótum. Af 28 viðskiptadögum ársins sem liðnir eru hefur úrvalsvísitalan lækkað 20 daga."

Eik banki [ FO-EIK ] hefur hækkað um 2,5% og Atlantic Airways [ FO-AIR ] hefur hækkað um 0,5%.

Exista [ EXISTA ] hefur lækkað um 7,3%, FL Group [ FL ] hefur lækkað um 4,6%, Glitnir [ GLB ]  hefur lækkað um 3,9%, Straumur [ STRB ] hefur lækkað um 3,4% og Spron [ SPRON ] hefur lækkað um 3,2%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,6% og er 131,1 stig.