Rúmlega 20% leigjenda á Íslandi telja frekar eða mjög líklegt að þeir missi húsnæðið sitt. Þeir sem leigja af einstaklingi á almennum markaði telja líklegra en aðrir að þeir missi húsnæðið sitt. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem leigumarkaðsdeild Íbúðalánasjóðs lét framkvæma og náði til handahófskennds úrtaks leigjenda af landinu öllu. Niðurstöður könnunarinnar verða kynntar í dag á húsnæðisþingi Íbúðalánasjóðs og velferðarráðuneytisins á Hilton Reykjavík Nordica. Á meðal þess sem kemur í ljós er að algengast er að leigjendur leigja af einstaklingi á almennum markaði, eða 35%. Tæpur fjórðungur leigir af ættingjum og vinum og 16% leigir af einkareknu leigufélagi.

Fáir vilja vera á leigumarkaði

Aðspurðir sögðust einungis 8% leigjenda vilja vera á leigumarkaði og langflestir, eða 86% leigjenda, vilja búa í eigin húsnæði. Þrátt fyrir þetta telja aðeins 40% öruggt eða líklegt að þeir kaupi sér sitt eigið húsnæði næst þegar skipt er um húsnæði. Þegar leigjendur voru spurðir hvers vegna þeir byggju ekki í eigin húsnæði var algengasta svarið að þeir hefðu ekki efni á því. Næstalgengast var að leigjendur nefndu að þeir ættu ekki fyrir útborgun og því næst að fasteignaverð væri of hátt.

Niðurstöður könnunarinnar leiða í ljós að leigjendur hafa að meðaltali flutt 3,8 sinnum á síðustu 10 árum og 1,6 sinnum á síðustu þremur árum. Þeir sem eru með lægstu tekjurnar hafa flutt oftast. Algengast er að leigusamningar séu í upphafi 1-2 ár að lengd. Einungis 3% leigjenda eru með ótímabundinn samning.

Sjá fáa kosti við að leigja

Tæplega helmingur leigjenda sér fáa eða enga kosti við það að leigja. Þegar leigjendur voru spurðir um helstu gallana við að leigja nefndu 72% háa leigu. Nær allir, eða 92%, sögðust telja óhagstætt að leigja íbúðarhúsnæði á Íslandi. Einungis 3% leigjenda telja það hagstætt en í samskonar könnun velferðarráðuneytisins fyrir þremur árum töldu 5% það hagstætt.