Langoftast var flogið til Lundúna frá Keflavíkurflugvelli í janúarmánuði eða í 21,5% tilvika. Þetta kemur fram í talningu Túrista .

Þar kemur fram að framboð á flugi héðan hafi aukist hratt á milli ára. Í síðasta mánuði hafi verið flogið beint frá Keflavík til 33 borga sem er aukning um níu staði frá sama tímabili í  fyrra.

Aukningin nemur 37,5%, en skal þó haft í huga að aðeins eru farnar örfáar ferðir til sumra af þessum borgum.

Lundúnir eru eins og fyrr segir mest sótta borgin, en í öðru sæti kemur Kaupmannahöfn með 10,3% ferða og svo Ósló með 8%.