Hjartað í Vatnsmýri mun afhenda Einari K. Guðfinnssyni, forseta Alþingis áskorun til stjórnvalda vegna flugvallarins í Vatnsmýri klukkan korter í eitt í dag. Rúmlega 69.000 manns hafa skrifað undir á vefnum lending.is og á undirskriftalistum um land allt. Afhendingin fer fram í anddyri Alþingis. Aðstandendur undirskriftasöfnunarinnar fullyrða að aldrei fyrr hafi nokkurt mál hlotið stuðning jafn margra einstaklinga hérlendis og flugvöllurinn í Vatnsmýri.

Áskorunin hljóðar svo:
„Við leggjumst gegn þeim áformum að flugvallarstarfsemi víki úr Vatnsmýrinni og skorum á Reykjavíkurborg og Alþingi að tryggja öllum landsmönnum óskerta flugstarfsemi í Vatnsmýri til framtíðar.“