Rekstrarstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, var jákvæð um 18.584 milljónir króna en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 7.811 milljónir króna. Rekstrarniðurstaðan er því 10.773 milljónum króna betri en gert var ráð fyrir.

Helstu ástæður fyrir betri afkomu má rekja til hærri tekjufærðra matsbreytinga fjárfestingaeigna Félagsbústaða hf., þ.e. að eignir Félagsbústaða hafa hækkað í verði. Það skýrir 7,7 milljarða króna af jákvæðri afkomu borgarinnar. Einnig spilar inn í lægri fjármagnsgjalda samstæðunnar vegna gangvirðisbreytinga innbyggðra afleiða í raforkusamningum hjá Orkuveitu Reykjavíkur, þar spilar inn í að álverð hefur hækkað, sem og var rekstrarkostnaðar lægri en áætlun gerði ráð fyrir.

Rekstrarniðurstaða samstæðunnar fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 14.240 milljónir króna sem er 4.450 milljón króna betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í árslok 551.114 milljónir króna - heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 290.621 milljónir króna og eigið fé borgarinnar var 260.493 milljónir króna en þar af var hlutdeild meðeigenda 13.955 milljónir króna.  Eiginfjárhlutfall samstæðunnar fer hækkandi og er nú 47,3% en var 45,8% um síðustu áramót.

Rekstrarniðurstaða A-hluta var betri en gert var ráð fyrir

Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 3.633 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 1.139 milljónir króna.

Niðurstaðan er því 2.494 milljónum króna betri en gert var ráð fyrir.  A-hluti Reykjavíkurborgar heldur utan um rekstur borgarinnar. Betri rekstrarniðurstaða A-hlutans skýrist einkum af hærri tekjum af sölu byggingarréttar og söluhagnaði fasteigna sem var 1.118 milljónum króna umfram áætlun auk hærri skatttekna og framlögum Jöfnunarsjóðs, sem voru 900 mkr hærri en áætlun gerði ráð fyrir að því er kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Dagur B. þakkar starfsmönnum

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir niðurstöðuna og stöðu borgarsjóðs sterka hvernig sem á uppgjörið sé litið.

,,Þessi góði árangur er afrakstur mikillar vinnu hundruða starfsfólks Reykjavíkurborgar, forstöðumanna stofnana, sviðstjóra, fjármáladeilda og fyrirtækjanna okkar. Kostnaður er á áætlun en tekjur styrkjast, auk þess sem hreinar skuldir lækka umtalsvert. Þetta gerir okkur kleift að bæta við fjárframlögum í skólamál, velferðar- og húsnæðismál og endurnýjun innviða. Það höfum við gert frá því viðsnúningur varð í rekstrinum um mitt síðasta ár og munum halda því áfram í næstu fjárhagsáætlun. Sterkari fjárhagsstaða gerir þetta kleift og skólar, velferð, húsnæðismál og innvirðir eru í forgangi hjá meirihluta borgarstjórnar,” segir Dagur B. Eggertsson.