Heildarveiði íslenskra skipa var 13,4% minni í júlí 2014 en í sama mánuði árið 2013, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands . Afli var minni í öllum tegundum nema ýsu og skelfiski.

Þegar borin eru saman 12 mánaða tímabil á milli ára, þ.e. ágúst til júlí, kemur í ljós að heildarafli dregst saman um 21,6% milli ára. Botnfiskafli stendur nokkurn veginn í stað á meðan 32% minnkun hefur orðið í uppsjávarafla á milli ára.

Magnvísitala á föstu verðlagi er um 17,3% lægri miðað við júlí í fyrra, en á á 12 mánaða tímabilinu ágúst 2013 til júlí 2014 hefur magnvísitalan lækkað um 5,3% miðað við sama tímabil árið áður.