Aflaverðmæti íslenska fiskiskipaflotans nam 30,1 milljarði króna í janúar og febrúar á þessu árið. Þetta er 6,6 milljörðum meira en á sama tíma í fyrr aog nemur aukningin 28,1% á milli ára, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.

Aflaverðmæti botnfisks var meira en helmingur af heildarverðmætinu, 17 milljarðar króna miðað við 13,2 milljarða á sama tíma í fyrra. Verðmæti þorskafla nam 9,8 milljörðum króna og ýsu 2,8 milljörðum.

Verðmæti uppsjávarafla nam á móti 11 milljörðum króna á þessum tveimur mánuðum , sem er um 29,6% aukning frá sama tíma í fyrra. Aukningin skýrist að mestu leyti af loðnuafla upp á 10,8 milljörðum króna samanborið við 7,3 milljarða á fyrstu tveimur síðasta árs.

Þá kemur fram í upplýsingum Hagstofunnar að verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 18,7 milljörðum króna og jókst um 29,5% miðað við fyrstu tvo mánuði síðasta árs. Þá nam verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 16,7% milli ára og var ríflega 3,7 milljarðar króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam tæpum 6,5 milljörðum í janúar til febrúar og jókst um 34,3% milli ára en verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam rúmum 1 milljarði króna, sem er 33,8% aukning frá árinu 2011.