Frystihús Samherja á Dalvík
Frystihús Samherja á Dalvík
© Björgvin Guðmundsson (VB Mynd/BG)
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 46,1 milljarði króna á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2011 samanborið við 46,5 milljarða á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því dregist saman um 382 milljónir eða 0,8% á milli ára af því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.

Verðmæti botnfiskt 30,7 milljarðar

Aflaverðmæti botnfisks var í lok apríl orðið 30,7 milljarðar og dróst saman um 12,7% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 35,1 milljarði króna. Verðmæti þorskafla var um 17,2 milljarðar og dróst saman um 7,4% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 4,6 milljörðum og dróst saman um 23,5%, en verðmæti karfaaflans nam 4,1 milljarði, sem er 23,4% samdráttur frá fyrstu fjórum mánuðum ársins 2010. Verðmæti ufsaaflans dróst saman um 2,8% milli ára í 2 milljarða.

Verðmæti flatfiskafla 3,5 milljarðar

Þá nam verðmæti flatfiskafla rúmum 3,5 milljörðum króna í janúar til apríl 2011, sem er 15,2% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 62,3% milli ára og nam tæpum 10,9 milljörðum. Má rekja þá verðmætaaukningu til aukins loðnuafla. Verðmæti hans nam 8,7 milljörðum króna og jókst um 248% milli ára.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 24,6 milljörðum króna og jókst um 17,4% frá fyrra ári. Aflaverðmæti sjófrystingar var rúmir 12,3 milljarðar sem er 11,7% samdráttur milli ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 9,2% milli ára og var um 6,8 milljarðar.