Aflaverðmæti síðast árs var rúmir 76 milljarðar króna og jókst um 12,1% frá fyrra ári. Þetta kemur fram í ritinu Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2006 sem Hagstofan gefur út. Í ritinu kemur m.a. fram að á árinu 2006 var afli íslenskra skipa tæp 1.323 þúsund tonn, 346 þúsund tonnum minni, en árið 2005.

Mest var unnið úr fiskaflanum á Austurlandi, enda var mesta magninu landað þar. Uppistaða aflans þar var uppsjávarfiskur. Aflakaupendur á höfuðborgarsvæðinu keyptu afla að andvirði 15,7 milljarðar króna og fór stærsti hluti botnfiskaflans í vinnslu þar, tæplega fjórðungur. Af þorskaflanum fór mest í salt en stærstur hluti ýsuaflans var frystur í landi.