Afli erlendra ríkja við Ísland minnkaði úr 114 þúsund tonnum 2005 í rúmlega 54 þúsund tonn 2006. Uppistaða aflans var loðna. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Hagstofu Íslands veiddu Færeyingar mest erlendra þjóða hér við land 2006 en Norðmenn árið 2005.

Heimsaflinn árið 2005 var 93 milljónir tonn og minnkaði um 1,1 milljón frá árinu 2004. Kyrrahafið gaf mestan afla og stærsta einstaka fisktegundin var Perúansjósa. Kínverjar veiddu mest allra þjóða árið 2005 en Íslendingar voru í 14. sæti heimslistans, í öðru sæti fiskveiðiþjóða á Norðaustur-Atlantshafi og í 8. sæti veiðiþjóða á Norðvestur-Atlantshafi.