Eins og kunnugt er urðu bilanir á báðum vélaspennum í Sultartangastöð í lok síðasta árs. Stöðin hefur einungis verið samtals fimm mánuði í rekstri síðan og þá með hálfum afköstum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun en þar segir að reynt hafi verið að gera við báða spennana og hafa sérfræðingar framleiðandans komið til landsins og séð um þær viðgerðir með dyggri aðstoð starfsmanna Landsvirkjunar.

Þá kemur fram að á næstu dögum verður annar vélaspennirinn í Sultartangastöð sendur til verksmiðju framleiðandans í Frakklandi. Þar verður rafbúnaður hans endurnýjaður og spennirinn prófaður eins og um nýjan spenni væri að ræða. Gert er ráð fyrir að hann komi aftur til landsins í vetur og fari í rekstur í ársbyrjun 2009.

Í fyrradag var gerð tilraun til að gangsetja hinn spenninn í Sultartangastöð eftir tilraun til viðgerðar. Í ljós kom að hún hafði mistekist. Á næstu dögum verður spennirinn skoðaður og ákvörðun tekin um hvernig staðið verður að viðgerð á honum. Ljóst er að nokkur tími mun líða áður en hann kemst í lag.

Kostnaðurinn við viðgerðir á vélaspennum Sultartangastöðvar er samkvæmt tilkynningunni orðinn talsverður og fer yfir 200 milljónir króna. Tjón vegna framleiðslutaps hefur hins vegar verið lítið.

Þá kemur fram að þar sem mjög góð vatnsstaða er í lónum Landsvirkjunar nú á þessu hausti er gert ráð fyrir óverulegri, en þó einhverri skerðingu á afhendingu til viðskiptavina af þessum sökum. Líklegt er að sú skerðing verði eingöngu bundin við viðskiptavini sem kaupa ótryggt rafmagn og afgangsorku. Viðskiptavinir verða nánar upplýstir um stöðuna á næstu dögum þegar búið verður að kanna nánar rekstrarhorfur á komandi vetri.