Á næstu mánuðum munu lækkandi húsnæðisverði og vaxandi slaki á vinnumarkaði sem og í hagkerfinu í heild draga úr verðbólguþrýstingi. Á móti vegur gengislækkun krónunnar og skattahækkanir stjórnvalda.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka í morgun en Greining Íslandsbanka gerir nú ráð fyrir að vísitala neysluverðs (VNV) hækki um 0,9% frá fyrri mánuði þannig að 12 mánaða verðbólga fari upp í 11,7% en hún er núna 11,6%.

Þetta er hækkun frá fyrri spá Greiningar en fyrr í þessum mánuði gerði hún ráð fyrir 0,7% hækkun VNV á milli mánaða.

„Meiri verðhækkun eldsneytis, áfengis og tóbaks í kjölfar hækkunar opinberra gjalda veldur þar mestu um,“ segir í Morgunkorni en greiningardeildin gerir jafnframt ráð fyrir að húsnæðisliður vísitölunnar muni lækka minna en áður var reiknað með.

„Enn eiga áhrif af hækkun opinberra gjalda á áfengi, tóbak og eldsneyti eftir að skila sér að fullu inn í VNV og þá hefur verið tilkynnt að ýmsar matvörur verði færðar yfir í efra þrep virðisaukaskatts. Mun þetta taka gildi 1. september næstkomandi og er reiknað með að það valdi 0,25% hækkun á vísitölu neysluverðs,“ segir jafnframt í Morgunkorni.

Verðhjöðnun í spilunum

Þá segir Greining Íslandsbanka að líklega sé aukin verðbólga nú á milli mánaða einungis tímabundið bakslag en verðbólgan hefur verið á niðurleið síðustu mánuði. Um áramótin síðustu mældist hún 18,6% og hefur því lækkað töluvert síðan.

„Vaxandi slaki í hagkerfinu með litlum sem engum launaþrýstingi, lækkandi íbúðaverði og almennt afar litlum eftirspurnarþrýstingi mun draga kraftinn úr verðbólgunni,“ segir í Morgunkorni.

Sjá nánar í Morgunkorni Íslandsbanka.