Íbúar á Akranesi hafa aldrei verið fleiri en nú, eða 5655 íbúar, sem skiptist þannig að karlar eru 2902 en konur eru 2753. Fjölgun frá árinu áður eru 73 íbúar sem gera um 1,3% sem er nokkuð yfir landsmeðaltali sem var 0,96%. Hagstofan hefur nú birt íbúatölur m.v. 1. desember 2004 og koma þessar tölur þar fram.