Iceland Express
Iceland Express
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)
Rúmlega 12 þúsund farþegar flugu með Iceland Express frá London Gatwick í júní síðastliðnum.  Það er 50% aukning frá fyrra mánuði og 44% prósenta aukning frá sama tíma í fyrra.  Aldrei hafa jafnmargir farþegar flogið með Iceland Express í einum mánuði frá London. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá CAA, breskum flugmálayfirvöldum.

Samkvæmt þessum tölum er markaðshlutdeild Iceland Express í farþegaflutningum frá London  rúmlega  41% og hefur aldrei verið meiri. Önnur flugfélög skipta með sér tæpum 59%. Iceland Express flýgur daglega til London Gatwick allan ársins hring.