Landbúnaðarstefna OECD-ríkjanna kostar samtals 360 milljarða dollara ár hvert, eða um 25 þúsund milljarða íslenskra króna. Fyrir þessa upphæð væri hægt að fljúga með hverja kú hringinn í kringum hnöttinn á fyrsta farrými og rúmlega það, á hverju ári.

Þetta er einn athyglisverðra fróðleiksmola um hnattvæðinguna sem sænsku samtök atvinnulífsins (SN) vekja athygli á. Meðal annarra má nefna að síðustu 40 ár hefur meðalævilengd fólks í þróunarríkjum vaxið úr 46 árum í 64. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Samtaka atvinnulífsins.