Rio Tinto Alcan (álverinu í Straumsvík) hefur ákveðið að verja 140 milljónum Bandaríkjadala, eða sem nemur 16 milljörðum króna, til breytinga á framleiðsluferli álversins í Straumsvík.

Í stað barra verða framleiddir svonefndir boltar (sívalar stangir), sem eru verðmætari afurð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá álverinu.

Þar segir að með þessu styrki Rio Tinto Alcan stöðu sína á markaði í Norður-Evrópu og efli þjónustu sína við viðskiptavini á þessu mikilvæga markaðssvæði. Fjárfestingin endurspegli þá stefnu fyrirtækisins að vera öflugur framleiðandi á hágæðavöru af þessari gerð.

„Við erum sannfærð um að eftirspurn fyrir álbolta verði góð í Evrópu og það mun gera okkur kleift að festa okkur í sessi á þessum þýðingarmikla markaði,“ segir Gordon Hamilton, framkvæmdastjóri á sölu- og markaðssviði Rio Tinto Alcan. „ISAL notar græna orku og losar lítið af gróðurhúsalofttegundum og getur því framleitt bolta á umhverfisvænni hátt en önnur álver. Aðkoma ISAL að framleiðslunni styrkir einnig stöðu okkar með hliðsjón af því að álverið hefur reynst afar áreiðanlegur framleiðandi á hágæðavörum,“

Einnig kemur fram að önnur álver Rio Tinto Alcan í Frakklandi og á Bretlandi munu taka við hluta af barraframleiðslunni sem ISAL hefur sinnt fram til þessa.

Gert er ráð fyrir að boltaframleiðsla hefjist í Straumsvík árið 2012 og að alfarið verði búið að skipta yfir í boltaframleiðslu fyrir árslok 2014.

Þetta verkefni er til viðbótar við 347 milljóna Bandaríkjadala fjárfestingu í uppfærslu á búnaði og 20% framleiðsluaukningu álversins sem tilkynnt var um 23. september sl. í kjölfar þess að endanlega var gengið frá langtímasamningi við Landsvirkjun um orkukaup álversins.