Lyfjafyrirtækið Alvogen, sem hefur verið aðalstyrktaraðili knattspyrnudeildar KR undanfarin fjögur ár, mun ekki framlengja samning þess efnis að vörumerki fyrirtækisins sé framan á búningum knattspyrnuliða KR. Þetta staðfesti Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóri hjá Alvogen, við Morgunblaðið.

Heimavöllur knattspyrnuliða KR mun þó áfram vera kenndur við Alvogen auk þess sem félagið mun halda áfram stuðningi sínum við körfuknattleiksdeild.