Gert er ráð fyrir töluverðri stækkun á verksmiðju Alvotech í Vatnsmýri í tillögu að deiliskipulagi sem hefur verið auglýst. Í tillögunni kemur fram að Alvotech hefur hug á stækkun sinnar byggingar og samkvæmt skipulagstillögunni mun byggingin stækka um ríflega helming til suðurs.

Gert er ráð fyrir sjö til átta lóðum á svæði Vísindagarða Háskóla Íslands í nýja skipulaginu, auk þess sem Háskóli Íslands fær lóð á miðju svæðinu