ANZA dótturfyrirtæki Símans, hefur keypt þann hluta af starfsemi TietoEnator sem veitir aðilum tengdum opinbera geiranum í Danmörku, Noregi og Svíþjóð þjónustu á sviði upplýsingatækni, segir í fréttatilkynningu.

Kaupverðið var ekki gefið upp, en hjá fyrirtækinu starfa um 420 manss og áætluð velta á árinu 2006 er 5,4 milljarðar króna.

Samfara því hefur verið stofnað fyrirtækið Sirius IT, nýtt norrrænt upplýsingatæknifyrirtæki sem yfirtekur þessa starfsemi.

ANZA segir rekstur félagsins fyrst og fremst byggjast á þróun og viðhaldi hugbúnaðarkerfa, margþættri ráðgjöf, innleiðingu staðlaðra hugbúnaðarlausna og fjölbreyttri þjónustu á þessu sviði.

Fyrirtækið eignast jafnframt með kaupunum vörur og hugbúnaðarlausnir, sem eru í notkun á Norðurlöndum og víðar. Þessar lausnir eru m.a. sérhæfð þjónustukerfi, skjalavistunarkerfi og eftirlitskerfi. Jafnframt er fyrirtækið með samstarfssamninga við helstu hugbúnaðarframleiðendur í heimi, svo sem Microsoft og Oracle.

Meðal viðskiptavina eru margar opinberar stofnanir á Norðurlöndunum, þjónustustofnanir, vinnumálastofnanir, skattyfirvöld, eftirlitsstofnanir, lífeyrissjóðir, sveitarfélög og einkafyrirtæki.

Starfsemin byggist mikið á því að veita þjónustu í tengslum við sérhæfðar lausnir sem þróaðar hafa verið af fyrirtækinu á undanförnum árum. Auk þess veitir félagið þjónustu sem snýr að stöðluðum lausnum og byggist starfsemin í Noregi t.d. einna helst á ráðgjöf og þjónustu við Oracle e-Business Suite fyrir háskóla, sjúkrahús, þjónustustofnanir og fleiri aðila.

Keypt er starfandi fyrirtæki í Svíþjóð og stofnuð eru ný rekstrarfélög um starfsemina í Danmörku og Noregi. ANZA mun eiga félögin í gegnum dótturfélag sitt í Danmörku Sirius IT Holding A/S. Lykilstjórnendur félagsins halda allir áfram störfum og munu eiga um 10% hlutafjár.