Búist er við því að Steve Jobs, forstjóri Apple tölvurisans, kynni til sögunnar nýjan iPhone síma á morgun.

Talsverðar breytingar munu vera á símanum frá fyrri gerð. Nýja gerðin mun vera búin 3G tækni.

Apple hefur selt um 1.7 milljón iPhone síma það sem af er árinu. Markmiðið er að selja 10 milljón síma á árinu. Miðað við efnahagsástand í heiminum í dag verður að telja það talsverða bjartsýni.