Í dag fengu 57 starfsmenn Arion banka afhent uppsagnarbréf. Þetta eru 38 starfsmenn í höfuðstöðvum og 19 á öðrum starfsstöðvum að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá Arion banka. Vinnumálastofnun hefur þegar verið tilkynnt um uppsagnirnar. Stöðugildi hjá móðurfélagi Arion banka voru 947 um mitt þetta ár en samtals 976 þann 30. júní 2010. Í árslok 2009 voru starfsmenn samtals 1.131.

Uppsagnirnar nú eru liður í hagræðingarferli sem staðið hefur yfir frá stofnun bankans. Það er erfitt skref að þurfa að grípa til uppsagna en nauðsynlegt til að bregðast við aðstæðum. Ekki eru fyrirhugaðar frekari aðgerðir af þessu tagi. Arion banki stendur frammi fyrir ákveðnum kaflaskilum í starfsemi sinni. Annars vegar líður að því að vinnu við úrlausnarmál ljúki. Hins vegar hefur dregið hratt úr vinnu tengdri endurskipulagningu í ytra umhverfi sem og við rannsókn og uppgjör af ýmsu tagi er tengjast fortíðinni. Almennt má ljóst vera að rekstur íslenska fjármálakerfisins er of kostnaðarsamur.

Fjöldi starfsfólks hjá fjármálafyrirtækjum hér á landi er of mikill miðað við umfang kerfisins. Sú staðreynd á einnig við um Arion banka. Að auki eru ný verkefni, s.s. eftirspurn eftir nýjum lánum og fjárfestingar í lægð sem stendur. Þrátt fyrir að afkoma bankans hafi verið viðunandi síðastliðin misseri er stór hluti þess hagnaðar tilkominn vegna endurmats á lánabók á fyrirtækjasviði bankans. Arðsemi af reglulegri starfssemi er ekki ásættanleg til lengri tíma litið. Arion banki hefur styrkt stöðu sína á markaði frá stofnun bankans en engu að síður eru aðgerðirnar nú nauðsynlegar til að treysta stöðu bankans og samkeppnishæfni til framtíðar. Stjórnendum Arion banka þykir þungbært að hafa þurft að grípa til þessara óhjákvæmilegu aðgerða.

Í Viðskiptablaðinu þann 12. maí kom fram að þrisvar sinnum færri íbúar eru að baki hverjum bankastarfsmanni á Íslandi en í Svíþjóð. Ísland er með langfæsta íbúa á bak við hvern starfsmann á Norðurlöndum og er eina af Norðurlöndunum sem hefur færri en 190 íbúa á hvern starfsmann.