Klapparás, félag í eigu Árna Haukssonar stjórnarmanns í Dagsbrún, hefur selt hluti í samsteypunni fyrir 204,4 milljónir króna, samkvæmt flöggun til Kauphallarinnar.

Um er að ræða 40.000.000 hluti á genginu 5,11. Eftir viðskiptin á hann 20.055.103 hluti.

Þann 3. október var tilkynnt um að Árni hefði selt í Dagsbrún fyrir um 101 milljón króna á genginu 5,07.