Árni Hrafn Gunnarsson hefur verið ráðinn lögfræðingur hjá Gildi lífeyrissjóði.

Árni starfaði áður hjá fyrirtækjaráðgjöf Straums fjárfestingabanka og hafði verið þar frá árinu 2012.

Fyrir þann tíma var hann meðal annars yfirlögfræðingur skilanefndar Glitnis banka, lögfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf hjá Íslandsbanka og forverum hans og fulltrúi á LEX lögmannsstofu.