Árni Pétur Jónsson, forstjóri Teymis, hefur keypt í félaginu fyrir 246 milljónir króna í Teymi, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Eru viðskiptin gerð í gegnum eignarhaldsfélagið Árna Pétur Jónsson ehf., sem hann á.

Hlutunum fylgir söluréttur sem verður virkur árið 29. ágúst árið 2010.

Kaupin fóru fram á núverandi markaðsgengi eða 6,15 krónur á hlut, og eru þetta 40 milljónir hluta.