Askar Capital hf. (Askar) hefur átt í endurhverfum viðskiptum við Seðlabanka Íslands með skuldabréf Glitnis banka og útistandandi fjárhæð er tæpir sex milljarðar króna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Askar vegna frétta af endurhverfum viðskiptum

Í tilkynningunni kemur fram að Askar getur lagt fram viðbótartryggingar vegna veðkalls Seðlabankans sem gert var þann 20. október 2008 en Seðlabankinn þurfi hins vegar að leggja mat á veðhæfni eignarinnar.

Einnig kemur fram að Askar hefur óskað eftir fundi með Seðlabankanum vegna þessa.

Þá hefur Askar möguleika á að lýsa yfir skuldajöfnun við Glitni en skuld Askar við Glitni er hærri en framangreint skuldabréf.

„Vegna óvissu er ekki unnt á þessu stigi að meta til fullnustu áhrif þessara aðgerða á fjárhagsstöðu Askar en verðlækkun skuldabréfanna getur haft verulega neikvæð áhrif á fjárhagsstöðu félagsins,“ segir í tilkynningu frá Askar.