Byggðastofnun hefur tekið 25 milljóna evra lán (3,2 milljarðar ísl.kr.) með milligöngu Askar Capital fjárfestingabanka en lánið er samansett af evrum og japönsku jeni.

Þetta kemur fram á vef Askar Capital.

Þar kemur fram að Askar Capital hafði milligöngu um lánið. Í undirbúningsferli fyrir lántökuna hafði Askar Capial milligöngu milli Byggðastofnunar og nokkurra alþjóðlegra banka. Þá sinnti Askar Capital samningaviðræðum og lagaaðstoð.